Posts by Stjornandi
Aðventuhátíð í Hlíðaskóla
Í dag var aðventuhátíð í Hlíðaskóla. Nemendur voru í sínum umsjónarstofum með sínum umsjónarkennara og skreyttu af miklum móð. Lögð er áhersla á að skreyta stofu hurðina á fallengan og skemmtilegan hátt. Nemendur fengu kakó og smákökur sem þeir gæddu sér á í nestinu og að því loknu gengur þeir um skólann og litu á…
Read MoreÞórir Snær sigrar Rímnaflæði
Þórir Snær Sigurðsson 10. bekk Hlíðaskóla keppti fyrir hönd Gleðibankans í Rímnaflæði sem er rappkeppni á vegum Samfés. Þórir sló í gegn með lagið sitt „Úlpa“ og sigraði keppnina. Rímnaflæði er fyrir nemendur á aldrinum 13-16 ára. Keppnin hefur gjarnan verið stökkpallur fyrir unga rappara og var fyrst haldin árið 1999. Við óskum Þóri og…
Read MoreEftirréttakeppni grunnskólanna
Þann 16. nóvember s.l. stóð kokkalandsliðið og Iðan fræðslusetur fyrir eftirréttakeppni grunnskólanna. Átta skólar tóku þátt valinn var einn sigurvegari. Allir skólarnir stóðu sig mjög vel og ekki munaði nema 3 stigum á efsta og neðsta liðinu. Hlíðaskóli tók þátt og voru nemendurnir sem tóku þátt fyrir okkar hönd svo sannarlega til fyrirmyndar. Guðni heimilisfræðikennari…
Read MoreBjarni Bergþórsson – íslenskuverðlaun unga fólksins
Íslenskuverðlaun unga fólksins voru afhent við hátíðlega athöfn í Norðurljósasal Hörpu á Degi íslenskrar tungu, þann 16. nóvember. Fulltrúi Hlíðaskóla var Bjarni Bergþórsson í 6.SS en hann hlaut verðlaunin fyrir sköpunargleði á sviði skapandi ritunar á íslensku. Hann skrifar sögur og handrit sem hann fyllir af innihaldsríkum orðaforða og fallegu máli. Vigdís FInnbogadóttir sá um…
Read MoreSlökkviliðið í heimsókn hjá 3. bekk
Í gær fékk 3. bekkur frábæra heimsókn frá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins. Börnin fræddust m.a. um eldvarnir heimilisins, rétt viðbrögð þegar eldur kviknar og störf slökkviliðsmanna. Börnin fengu einnig að skoða slökkvi- og sjúkrabíl sem var ótrúlega spennandi.
Read MoreVellíðunarvika í Hlíðaskóla
Síðustu vikuna í október var fyrsta þemaverkefnið í lífsleikni í vetur. Verkefnið var unnið í tengslum við forvarnarmánuð grunnskólanna sem er október, með það að markmiði að efla og bæta samskipti og almenna vellíðan allra í skólanum. Að allri átti sig á að vellíðan er grundvöllur þess að nám geti átt sér stað og að allir…
Read MoreSímalaus sunnudagur – tökum þátt
SÍMALAUS 30. OKTÓBER UPPLIFUM ÆVINTÝRIN SAMAN Barnaheill – Save the Children á Íslandi vilja hvetja alla til að taka þátt í símalausum sunnudegi þann 30. október næstkomandi. Áskorunin felst í því að leggja frá sér símann og önnur snjalltæki í 12 klukkustundir, frá kl. 9–21. Yfirskrift átaksins er ,,Upplifum ævintýrin saman” og er markmiðið að…
Read More1. bekkur og umferðin
Nemendur í 1.bekk hafa verið að læra um umferðina og umferðarmerkin. Kennslan var samþætt í samfélagsfræði,byrjendalæsi og stærðfræði. Umferðarreglur, stafakennsla og form.
Read MoreKartöfluuppskera hjá 3. bekk
Nemendur í 3. bekk eru að fræðast og vinna verkefni um kartöfluna. Í vor settu þau niður kartöflur og í dag tóku þau upp. Uppskeran var ljómandi góð.
Read More4. bekkur á Degi íslenskarar náttúru
Í tilefni af degi náttúrunnar gerðu nemendur í 4. bekk vísindarannsókn. Á þriðjudaginn skundaði hópurinn upp í Öskjuhlíð og festi plastpoka utan um trjágreinar með gúmmíteygju. Markmiðið var að athuga hvort það væri satt að tré andi. Í dag fór svo hópurinn og skoðaði niðurstöður tilraunarinnar. Í ljós kom að pokarnir sem áður voru þurrir…
Read More