Skip to content

Desember í Hlíðaskóla

Enn nálgast jólin og aftur verða desemberhefðir skólans aðlagaðar að ástandinu margumtalaða.

Jólaskógurinn verður tilefni til gönguferðar einhvern morguninn í desember. Þangað fara nemendur og dansa í kring um jólatré sem er í rjóðrinu okkar, syngja og gæða sér á veitingum í boði skólans áður en þeir halda aftur heim.

Þann 8. desember verður árleg aðventuhátíð þar sem nemendur skreyta stofuna sína og hurðina.
Þá verður jólastemming þar sem nemendur eiga notalega stund, föndra, skreyta, hlusta jafnvel á jólasögu, drekka heitt kakó með rjóma og borða smákökur.

Stofujól 17. desember er skertur dagur og líkur þá hefðbundnum skóla klukkan 12.20.
Þann dag undirbúa nemendur komu jólanna.

Hefðbundin jólaböll verða ekki þetta árið frekar en á síðasta ári en þann 20.desember (áætlaðan jólaballsdag) verður jólagleði haldin í heimastofu nemenda. Þá mæta allir prúðbúnir og standa „litlu jólin“ yfir í áttatíu mínútur.