Skólasetning í Hlíðaskóla haust 2022
Skólasetning í Hlíðaskóla verður 22.ágúst
Nemendur mæti til skólasetningar sem hér segir:
Kl. 09:00: 9. og 10. bekkur
Kl. 09:30 8. bekkur
Kl. 10:00 7. bekkur
Kl. 10:30 6. bekkur
Kl. 11:00 5. bekkur
Kl. 11:30 4. bekkur
Kl. 12:00 3. bekkur
Kl. 12:30 2. bekkur
Nemendur mæta á sal skólans, hitta kennara sína, fá stundaskrá og aðrar upplýsingar um skólastarfið.
Foreldrar eru velkomnir á skólasetningu.
Kennsla í 2. – 10. bekk hefst samkvæmt stundaskrá þriðjudaginn 23. ágúst.
Skólabyrjun í 1.bekk
Nemendur 1. bekkjar verða boðaðir til viðtals með foreldrum sínum. Kennsla í 1. bekk hefst samkvæmt stundaskrá miðvikudaginn 24. ágúst.
Í upphafi skólaárs fá nemendur þær bækur og ritföng sem þeir þurfa að nota yfir veturinn, þeim að kostnaðarlausu. Gert er ráð fyrir að allir fari vel með sitt.
Við hlökkum til að taka á móti nemendum og hefja nýtt skólaár í Hlíðaskóla.